09 maí 2009

jæja.. bara kominn maí og rúmlega það!!
er einhver sem kíkir hérna inn ennþá??


En það er allavega allt fínt að frétta úr kotinu :) Áttum yndislega páska á Jótlandi þar sem við tróðum í okkur dýrindis mat og nutum góða veðursins. Ég reyndi að lesa inn á milli máltíða - bæði hjá mér og Ísak! - Klaus spilaði við bræður sína og krakkana og Ísak hreinlega svaf af sér alla páskana! Hann var sko þvílíkt að fíla ferska sveitaloftið, fuglasönginn og svínaskítafíluna frá nágrönnunum :)

Þegar heim var komið tók við hundleiðinleg törn hjá mér. Strax eftir páskana hófst 72 tíma heimaverkefni og í vikunni á eftir var 4 tíma skriflegt próf. Klaus var í fríi og það hjálpaði heilmikið. Ísak var reyndar ekkert of samvinnuþýður.. hann hefur hreinlega fundið á sér að mamman var eitthvað taugaveikluð þessa daga. Hann svaf lítið á daginn og var sísvangur. Þar að auki minnkaði mjólkin mikið hjá mér, hreinlega út af stressi. Drengurinn var semsagt ekkert of kátur með mömmu sína þessa dagana. Hann fékk smá þurrmjólk með á meðan þessu stóð og svolgraði henni niður eins og ekkert væri. Þannig að það er óhætt að segja að einbeitingin hjá mér var alls ekki nógu góð enda gengu prófin alls ekkert nógu vel. Ég fæ nú bara aulahroll þegar ég rifja upp sumt sem ég skrifaði á síðustu stundu í þessu blessaða heimaprófi!!! En það verður nú einhver að skemmta kennaranum ekki satt??? Ef ég næ þessu þá verð ég voðalega heppin..en ég nenni ómögulega að vera með einhverja eftirsjá. Sjálfsagt hefði ég getað skipulagt mig betur og lesið meira eftir að Ísak fæddist.. og auðvitað er það fullmikil bjartsýni að halda að ég geti náð svona stórum kúrs án þessa að mæta í tímana.. EN ég ætla bara að búast við því versta og vona það besta!! :)

Lífið er allavega búið að vera voðalega ljúft eftir að þessu lauk :) Loksins alvöru fæðingarorlof!! Langir göngutúrar með vagninn, garðhittingar í góða veðrinum með Þórey og Óskar, hangið á kaffihúsinu hjá Klaus eða bara kúrað uppí rúmi með Ísak þegar það er kalt og blautt úti :) Ekki slæmt!

Brúðkaupsplönin mjakast áfram hægt og rólega.. það fer ekkert á milli mála hvernig forgangsröðin er á þessu heimili, við erum hvorki að pæla í fatnaði eða hringjum.. EN það er búið að redda fyrsta flokks espressóvél, kvörn og afbragðskaffibarþjónum!!! :) Þannig að þó við endum í gömlum lufsum og hringjalaus þá fáið þið alla vega fyrsta flokks kaffi!!! :)

Ísak stækkar ótrúlega hratt. Það er sko ekkert ponsaralegt við hann lengur enda er hann búin að tvöfalda fæðingarþyngd sína og vel rúmlega það. Var 5800grömm í 3ja mánaða skoðun. Hann er duglegur að hjala og brosa, og er meira að segja byrjaður að hlægja líka þegar virkilega vel liggur á honum. Ég reyni að setja inn nýjar myndir á síðuna hans á morgun eða hinn.

Að lokum langar mig að monta mig á Maj Britt vinkonu minni. Skvísan er nýbúin að verja mastersritgerðina sína í lögfræði og gerði það með glæsibrag :) Ég er ekkert smá stolt af henni. Það er ekkert smá afrek að eignast tvær dætur og afgreiða svona ritgerð á sama tíma. Þegar ég fer í að skrifa mína pínkupons BS ritgerð í haust, þá hugsa ég til þín Maj Britt mín!!! :) Enn og aftur til hamingju með þetta allt saman!

ta ta..

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég les ég les, kem hér inn á hverjum degi á mínum daglega rúnti.
Ég trúi nú varla að prófið hafi gengið alveg svona illa Sigga Dóra mín. Þekki þig betur en það ;)

Ég var í prófum þegar Ardís var nývöknuð nema hvað ég er alltaf svo öfugsnúin og mjólkaði alltaf meira þegar ég lenti í stressi. Týpísk ég.

Við Kalli mætum bara tvö ein í brúðkaup því krakkarnir verða hjá hinum Árdís var ekket smá svekkt en kannski fá þau að skreppa hún og Skírnir ég er samt ekki að vera neitt of bjartsýn á það. Sjáum til

Alla vega bara smá langt innlitskvitt hérna. Sakna þín svo mikið þessa dagana og finnst þú vera alltof alltof langt í burtu

Guðný

Nafnlaus sagði...

Ég kíki ennþá:)
Takk fyrir brúðkaupsboðið! Því miður erum við akkúrat að fara í burtu þessa helgi, búin að panta fellihýsi og erum að fara í útilegu Íslenskrar ættleiðingar. Algjörlega ömurlegt að það skyldi hittast svona á!!!:( Ég er hundfúl:/ Langar alls ekki að missa af þessu! Þið verðið eiginlega að breyta dagsetningunni;) Hahahaha:D
Ég kalla þig nú góða að hafa staðið í verkefnum og prófum með pínulítið barn! Mátt bara vera stolt með að hafa klárað þetta af!:)
Annars bara knús og kremjur:*
Gígja.

Nafnlaus sagði...

Sigga Dóra mín.
Gaman að sjá nýtt blogg. Ég er ansi oft að kíkja á vídeóið af Ísak á safninu, það er ómótstæðilegt. Þú hlýtur að hafa komist í gegnum prófið, en den tid den sorg ef þú þarft að endurtaka það.
Sammála um brúðkaupsklæði og hringa, óþarfi að vera með það í forgangi.
Henni er ekki fisjað saman vinkonu þinni að klára mastersritgerð með tvö börn á tveimur árum, þvilíkur dagnaður.
Ég veit að þú ert búin að frétta af Guðnýju Ósk, maður er varla búin að átta sig á þessu. Ég vona að keppnin verði sýnd í sjónvarpinu, þetta er meiri háttar afrek hjá henni, hún er svo til nýbyrjuð í þessari gerð dansa held ég.
Jæja Sigga Dóra mín bestu kveðjur til strákanna þinna frá okkur á skerinu kalda, mamma.

Veinólína sagði...

Æ hvað það var gott að fá smá blogg, þessi mynd af Ísak er algjörlega dásamleg!!! Hér rignir og blæs eins og skrattinn sjálfur... það hlýtur bara að fara koma sumar og sól, ég finn það á mér..(ein að reyna að kalla yfir sig sólina með jákvæðninni).

Hafðu það rosalega gott og vertu ánægð með þig, engin ástæða til annars, alla vega svona eftir að prófunum er lokið... skil vel stressið sem hýtur að fylgja þessu samt. ;)

Knús og þúsund kossar, þín Vigdís.

Maja pæja sagði...

Vá en frábærar kveðjur hér á síðunni þinni til mín! Þú ert nú alveg yndisleg vinkona og ég hlakka svoooo til að knúsa þig og Ísak litla í sumar. Hann er alveg sætastur. Þú ert sko líka massa dugleg að taka þessi próf núna með svona lítið kríli, það er sko meira en að segja það. Takk æðislega fyrir að kaupa buxurnar fyrir mig, ég get lagt inn á þig ef að þú vilt það frekar en að ég borgi þér í sumar. Bara eins og þú vilt. Hvað get ég meira sagt en að þú ert besta besta bestasta í heimi... knús

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Dóra, þú massar þessi próf. Er í algjörri beyglu varðandi brúðkaupið, Hjörvar var búinn að skipuleggja fjölskylduferð með nokkrum í vinnunni þessa helgi og er búið að panta skála upp við Gæsavötn. Hann getur því ekki pakkað út úr því og það var búið að ákveða að halda upp á afmælið hennar Jakobínu í þessari ferð sem er 18. júlí. Veit ekki hvað við gerum, hvort ég verði eftir eða ekki. Ég skipti um skoðum á klukkutímafresti því mér þykir rosalega leiðinlegt að missa af brúðkaupinu þínu. Læt þig vita!

kv. Sunna