24 apríl 2007

Hvar á ég að byrja?..

Það náttúrulega gengur ekki að láta svona langt líða á milli blogga! Það er búið að vera nóg að gera skal ég segja ykkur..

Páskafríið var voðalega notalegt á Vestur Jótlandi.. ég fékk að sjálfsögðu sent íslenskt páskaegg frá ma&pa ásamt meiru íslensku góðgæti. Reyndar lagðist Klaus í flensu pákahelgina.. og þá ekki slæmt að hafa mömmu sína til að hugsa um sig!! ;) Þessir karlmenn geta nú breyst í svoddan smábörn þegar þeir komast á hótel mömmu...
--
Þegar við komum tilbaka helltist flensan hinsvegar yfir mig, auðvitað daginn áður en við flugum til Íslands :( Ferlega var það svekkjandi... Ég var semsagt heima í nokkra daga að dæma á Íslandsmóti kaffibarþjóna en náði eiginlega ekki að hitta neina :( Reyndi að hvíla mig sem mest á milli þess sem við vorum að dæma uppí MK. Imma frá Kaffitár varð Íslandsmeistari annað árið í röð.. stóð sig hrikalega vel stelpan! Svo var auðvitað fínasta partý um kvöldið 'a la íslenskir kaffibarþjónar'
Svaka stuð í Saltfélaginu..

???

Elfa og Imma


Morgunin eftir var okkur svo boðið í dýrindis brunch í Efstasundinu þar sem við hittum Mömmu, pabba, Hödda, Snæju, Frikka, Daníel, Jóhannes, Ragnheiði og auðvitað hundana þrjá... Það var gott að sjá allavega einhverja úr fjölskyldunni é þessasri stuttu ferð.

Svo komum við heim til Köben.. Klaus fór til Þýskalands daginn eftir, ég kíkti einn dag í skólann og hitti svo Klaus í Barcelona næsta dag. Ó hvað það var yndislegt að koma þangað aftur.. Skil ekkert af hverju ég lét svona langan tíma líða síðan ég fór síðast. Ég var mætt hálfum degi á undan Klaus þannig að ég skellti mér í heimsókn til Höllu, Arnars og Uglu. Halla var á leiðinni til Amsterdam strax morguninn eftir þannig að ég var heppin á ná á þeim öllum saman..

Mér var boðið í mat og Arnar galdraði fram dýrindis fiskisúpu og við kjöftuðum fram eftir kvöldi... Það besta var samt að það var eins og við hefðum hist í gær síðast! Það er svo frábært þegar maður getur treysta á að vináttan breytist ekkert þó að langt líði á milli hittinga!! :)

En við vorum fyrst og fremst í Barcelona til að útbúa kaffidrykki fyrir stóran Philips fund. Í einn og hálfan daga hömuðumst við á espressóvélinni þegar ca. 300 manns frá Philips voru í pásum frá löngum og ströngum fundarhöldum um markaðsmál. Þetta var allt haldið á Hilton hótelinu við ströndina þannig að það fór voðalega vel um okkur..
Á kvöldin reyndum við svo að túristast aðeins (1sta skipti Klaus í Bcn) og borða góðan spænskan mat.. ;)
Mætt niðrí bæ..

Ummmm..tróðumst hér inn og fengum okkur Cava og Tapas..

Á þakinu á Casa Milá..

Meiri Tapas.. ;)

Á Íslandi kynntumst við Chiöru sem er spænski kaffibarþjónameistarinn. Hún var komin til Íslands til að læra meira... Við kíktum auðvitað á hana í Barcelona og við fórum með henni til brennslumeistarans hennar sem á mjög kósí kaffibrennslu ekki svo langt frá þar sem ég bjó seinni veturinn minn þar. Hafði oft labbað þarna fram hjá en vissi náttúrulega EKKERT um kaffi þegar ég bjó í Bcn.

Chiara (frá vinstri), Klaus og Salvador brennslumeistari..

Við komum heim seint á föstudagskvöld og strax morguninn eftir tók við Danska kaffibarþjónamótið. Ég var að dæma þar bæði lau og sunnudag og Lene Hyldahl frá Álaborg bar sigur úr býtum. Hún stóð sig hrikalega vel og þetta er í fyrsta skipti sem sigurvegarinn hér er kona og ekki frá Kaupmannahafnarsvæðinu.. kominn tími til!

Jæja.. þetta verður að duga í bili. Vegna allra þessara ferðalaga þá er auðvitað lesefnið fyrir skólann búið að hrúgast upp hjá mér.. verð að vera dugleg næstu vikurnar!! Wish me luck!! ;)

sd

5 ummæli:

Dilja sagði...

þú lifir svo skemmtilegu og spennandi lífi kona!
vona að þú sért að njóta hverrar agnar af því:)

Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega, það eru ævintýri upp á hvern dag, þannig að ekki vera döpur yfir íbúðarmálum. Þau eru bara smámál þegar ævintýri bíða þín í svo til hverri viku. Njóttu, lifðu, elskaðu.
Síðan má hugsa um hvar á að búa :)

Knús og kreistur frá Krók

Nafnlaus sagði...

Vona að allt gangi vel elskan mín. Vildi bara láta þig vita að ég týndi gemsanum mínum, veit ekki hvort þú ert búin að vera að reyna að ná í mig....bara svona til öryggis þá er síminn í Grindavík 431-2416.

Lovjú!
ÞÍn Vigdís. :O)

Nafnlaus sagði...

æ elsku sigga dóra mín, en hvað ég saknaði þín hryllilega þegar að ég las þessa færslu. ég fékk alveg nostalgíu kast og rifjaði upp minningar frá barcelonaferðum mínum til þín.. mannstu varðeldinn á ströndinni með höllu, arnari, laufeyju og fleirum..

það er svo yndislegt að ferðast svona og kynnast nýju fólki og nýjum hlutum. verðum að hittast næst þegar að þú kemur á klakann.

knús þín majbritt

Sigga Dóra sagði...

oh já Maj Britt, það var sko kósí hjá okkur þegar þú komst til mín til Bcn..og þegar við fórum til Portúgal saman! Kannski komumst við einhvern tímann í húsmæðra orlof saman seinna meir þegar öll barnamál eru afgreidd og svoleiðis og karlarnir geta meikað eina viku eða svo án okkar ;)
En ég vona að ég komist aðeins heim í sumar og sjá alla.. og sérstaklega þig og kúluna!! Svo þyrfti ég líka helst að skjótast heim í haust þegar unginn er kominn í heiminn..er það ekki? ;)
miss jú!