15 október 2008

Haust'frí'

Þar sem ég er í valfögum í skólanum núna þá er ég ekki í þessum fjórðungakerfi núna sem deildin mín notar (ein af mjög fáum í skólanum). Sem þýðir að ég fer barasta í haustfrí í heila viku eins meirihluti skólans - í staðinn fyrir að vera í prófum eins og venjan er í okkar deild á þessum tíma. Ekki slæmt! Reyni samt að nota 'fríið' til að lesa upp það sem ég missti af á meðan ég var á Íslandi og svo auðvitað að vinna eins og ég get. Þetta þýðir líka að ég verð komin í jólafrí frá skólanum 12.des!! í staðinn fyrir að vera í prófum fram til 21. eða eitthvað álíka - heldur ekki slæmt :) En þá verður líka bara jóla'fríið' nýtt til að vinna eins mikið og ég get. Það veitir víst ekkert af að reyna að þéna smá aur... þurfum víst að safna fyrir barnavagni og svoleiðis. Við erum samt ótrúlega heppin með að það er mjög margt sem við getum fengið lánað þannig að ég er ekkert að kvarta.

En ég hef semsagt ákveðið að lofa mér í vinnu milli jóla og nýárs sem þýðir auðvitað að við komum ekki heim um jólin :( Þetta var erfið ákvörðun en svona er þetta bara.. ég fær líka betra orlof því meira sem ég vinna fram orlofinu þannig að nú er það bara skynsemin sem ræður ríkjum hér!! ;) Klaus er mjög svekktur að komast ekki til Íslands um jólin enda alltof langt síðan hann kom síðast. Það var eiginlega bara ég sem ákvað þetta og tilkynnti honum þetta eftir að ég var búin að melta þetta og sætta mig við þetta allt saman.. núna er ég eiginlega í því að hughreysta hann og sannfæra um að þetta sé rétt ákvörðum. Finnst þetta hálf öfugsnúin staða eitthvað.. en ég hlakka þá bara ennþá meira til að eyða jólum heima á Íslandi næst með lítinn gaur með í för ;)

sd

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohoo nei ég trúi þessu ekki! :( *hágrenj*

en það er mjög skynsamlegt að vera skynsamur á þessum síðustu og verstu ;)

Sigrún sagði...

búhú, glatað en ég skil þig totally með skynsemina. það þýðir víst ekkert annað. en anyway, ég hélt vinnunni í dag en kjörin eru óráðin. býst ekki við miklu þó svo kannski verð ég "pleasantly surprised" - hver veit :)

Nafnlaus sagði...

Já er ekki best að vera skynsamur...það koma jól eftir þessi jól og þið fáið malt og appelsín og grænar baunir í pósti...hahahah mannstu eftir jólunum okkar í SanFransisco....við héldum klikkuð jól...hvað var ekki á borðinu fyrir fjóra!! Og ómissandi grænu baunirnar. LOL Ég er hlæjandi by the way!!
Hafðu það gott og farðu vel með þig!!

Ó